Monday, August 28, 2006
Nýtt

nýtt blogg elskurnar!

vallywaren.bloggar.is

Linkar koma seinna,svo ekki missa ykkur í reidi,ef tid sjáid ekki link á síduna ykkar, easy tigers!

 


Posted at 01:15 pm by valborgin
koma svo!!!  

Thursday, August 24, 2006
hobba hobba

KOmin med ibud! hurrey! Allir i heimsokn, bara einn i einu, tvi ad ekki er hun stor og sei sei nei.

Tad var mer mikid glediefni tegar eg sa ad rokkvinir minir i Powersolo eru med tonleika herna i Kolding,9.september og ætla eg potttett(vuff fullt af t-um) ad mæta og skaka a mer bossann sem er ad stinnast med degi hverjum, sokum mikillar labbitura. Eg og Engilberts SKifuthrjotur og vinnufelagi i sumar, tunudum felagana ansi oft i sumar og rokkudum einsog engin væri morgunudagurinn, yfirmanni okkar og vidskiptavinum okkar til mikillar gledi. Tid getid tjekkad a felogunum a hinu margfræga myspace- http://www.myspace.com/powersolo eda bara http://www.powersolo.dk sem er toff heimasida.

Eg hef komist ad tvi ad einhversstadar herna i skolanum minum leynist einmana hommi tvi ad hann ehfur verid i tolvunni a undan mer ad skoda tessa sidu http://boyfriend.dk, hef eg verid ad skemmta mer hid besta yfir tessari agætu sidu. NUna ætla eg bara ad finna tennan homma og bjoda syndinni heim i kaffi.


Posted at 02:24 pm by valborgin
Comments (4)  

Monday, August 21, 2006
Komin

Jebb komin til DK og ferdin gekk glimrandi vel, thratt fyrir svefnleysi og annad:)

Eg skal kom med sogur sidar eda bara um leid og eitthvad skemmtilegt gerist fyrir mig, sem hlytur ad vera soon thar sem eg er mjog god i tvi ad koma mer i kjanalegar adstaedur og svona.

EN eg sakna ykkar allra uti geim og tilbaka!!! 


Posted at 01:17 pm by valborgin
Comments (9)  

Tuesday, August 08, 2006
2#Hafiði

lent í því að vera á rauðu ljósi á ónefndum bissí vegamótum í Reykjavík og allt í einu fengið óstjórnlega löngun til þess að æla? Eiginlega verði þið að æla sökum óhóflegrar Wisky drykkju kvöldið áður. Viti þið hvað er þá best að gera? Opna hurðina og æla.

Ég lenti í þessu í gær...good shit maður...good shit


Posted at 10:21 pm by valborgin
Comments (6)  

Thursday, August 03, 2006
HAfiði

lent í því að æða inní hús í þeirri meiningu að manneskja sem þið þekkjið búi þar enn en svo kemur annað uppá daginn og upphefst pínleg og vandræðaleg atburðarás og þið óskið þess að jörðin myndi gleypa ykkur á staðnum?

Ég hef lent í því,ætlaði að kolekta lopapeysuna mína. Þannig að FOKK JÚ Óttar Brjánn að segja mér ekki að þú værir fluttur!!! Fokk jú út í geim og til baka, þetta var mjög óþægilegt!

Það versta er að ég hef enn ekki komist að þvi hvar Óttar Brjánn býr og er því enn lopapeysulaus!


Posted at 03:06 pm by valborgin
Comments (3)  

Monday, July 31, 2006
Sumarfrí!

Það er fullorðins og móðins að taka sér sumarfrí og hef ég verið í þeim pakka síðustu vikuna. Stóð ég mig með mikilli prýði sem móðirsystir og enn betra sem alkolisti

LUNGA:

Það vildi svo skemmtilega til að Lunga hátíðin hennar Bjartar(sys) var einmitt fyrri sumarfríshelgina og varð ég þess heiður aðnjótandi að sitja í bíl með óléttri konu alla leiðina austur. Sú ólétta stóð sig mjög vel sem dj og skúbba heilan helling og hún stóð sig líka glimrandi vel í að hækka hitann í milljón eða kæla niður nibblurnar það mikið að hættulegt gat talist en við komumst heilu á höldnu austur og mikið var nú gott að fá mömmuknús sem hafði þó meiri áhyggjur af óléttu ástkonunni minni heldur en mér með kalnibblurnar.

Lunga var hin mesta skemmtun og fannst mér geggjað að hitta Elsuna mína sem er hressleikinn uppmálaður. Við Reynir lögðum á slöttráðin sem rættist úr, ég óð í pollinn sem er í miðju bænum til þess að sanna fyrir Reykvíkingi að þetta væri ekki saltvatn, dansaði við Todmobile, fékk Maggýjar knús, pimpaði Soffíu Tinnu út en hún hafði nú huxað sér annað og svo var tjaldað á fótboltavellinum.

Borgarfjörður Eystri:

Jesús pétur á himnum, hvað þetta var geggjuð helgi, ef stiklað er á mjög stóru þá gerðist til dæmis þetta:

-Elsa pikkaði Brasilíska stelpu á netinu og sagði henni að koma á Boggann, sem hún gerði(okey, sagan er ekki alveg svona einföld en mér finnst mín útgáfa miklu skemmtilegri heldur en sú sanna)

-Gítarpartý í Réttarholti með bjórdrykkju og wisky, Johnny Cash sungin fyrir ameríkanana sem gistu þar.

-Dansað við unaðsöng Hlyns Ben í Fjarðarborg ásamt meðlimum Belle&Sebastian og ef ég,Elsa og Bóel hefðum ekki verið á dansgólfinu hefði Emiliana Torrini verið drottning gólfsins.

-Álfaborgarferð

-Þynnka á laugardaginn, bjór klukkan 14:00, trampolin hopp og lög sungin með Hlynzanum. Fótboltaleikur þar sem Krissa var tækluð duglega,skal þó tekið fram að hún var ekki að spila,sat bara á hliðarlínunni.

-Grillveisla þar sem var ælt og svo borðað meira.

-Klikkaðir tónleikar, dansað einsog engin væri morgundagurinn og sungið með.

-Brunnaparty að hætti Elsu.útskýring:Gamall vatnstankur með geðveiku sándi í, hægt að radda sjálfan sig. Heiðursgestur var Emiliana sjálf sem táraðist af hamingju. Eftir að ættjarðarlögin voru kryfjuð, var endað partýið með eitt stykki hokí pokí.

-Fjarðaborg með hinum fína dj Ívar. Plássið var lítið þannig að ég og raggi brugðum á það ráð að dansa uppá sviði, sem var gaman, enda erum við athyglissjúk. 

-Vaknaði um nóttina þar sem Bryndís húsfrú Réttarholts var að reka Elsu og alla skotana sem hún hafði dregið niður í brunninn, upp, þá var bara trallað á tjaldstæðinu og Örn Ingi vaknaði við hliðina á tengdapabba sínum.

SNilldar helgi, takk allir saman,

Vallý-blue moon, I saw you standing alone!!


Posted at 09:11 pm by valborgin
Comments (8)  

Tuesday, July 11, 2006
hömm

 

Ef einhver hefði gefið mér lax & skyr í afmælisgjöf, hefði sá hinn sami fengið laxinn uppí rassgatið og skyrið í andlitið!

Vallý:Tekur enganveginn mark á að það er hugurinn sem gildir!


Posted at 07:01 pm by valborgin
Comments (5)  

Saturday, July 08, 2006
.

Vikan hefur hreinlega ekki verið skemmtileg því að mér finnst ekki gaman að vera inni þegar það er sól úti, loksins þegar sólarskrattinn ákveður a' láta sjá sig, ég er ekki búin að safna neinni nýrri freknu í sumar! En þegar mér leiðist þá er spanderað og þar sem ég er löt þá var ekki farið lengra en hring í Skífunni og fjárfest í skífum. Það sem ég hef keypt þessa viku er nýji Johnny Cash diskurinn sem er klárlega þunglyndisaukandi því að hann er svo sad, samt magnaður, fallegur og snilldin útí gegn en sorgmæddur fyrst og fremst. Gamli coco rosie diskurinn því að ég týndi honum og það má nú ekki, Bianca my girlfriend væri nú ekki sátt ef hún frétti þetta. Nyji PowerSolo diskurinn sem er snilld, party party smartís party og svo gamli Powersolo líka Its a raceday...and your pussy is gut...nafnið heillaði mig ákaflega.. svalur..Powersolo er bara svöl hljómsveit og já svo keypti ég líka nýja Hot chip diskinn og hann er svalur lika. þannig að ég hef keypt mér disk á dag og er hvergi nærri hætt, á mánudaginn er það nýji PeepingTom diskurinn.

Jakob gaf mér kassa af Nastro í afmælisgjöf, einn bjór fyrir hvert ár sem ég hef lifað. Við fengum okkur einn Nastro eftir vinnu í gær og ef ég má gefa ykkur tips, þá skulu þig aldrei fá ykkur Nastro og svo einhverja aðra tegund á eftir, seinni tegundin á sér ekki viðrreisnar von eftir Nastroin. ANYWAYS við sátum heima hjá honum, ég fékk að vera dj og eftir nokkra bjóra var switch sett á rípley og gamlir danstaktar rifjaðir upp, djöfull erum við svöl. Svo var haldið í byen, á DIllon, tekin skot og drukkin bjór áður en haldið var á Barinn þar sem ég hitti stórvin minn Hjalta og þá var nú aldeilis dansað þangað til að Hjalti vildi finna dverg í klám og þar sem ég var alls ekki tilkippileg hvarf hann á braut og ég fór heim til þess eins að mæta falleg í vinnuna í dag.

Núna er ég að fara að hitta Láru og er öll spennt, við erum nebbla bullstappar dauðans saman 


Posted at 08:44 pm by valborgin
Comment (1)  

Wednesday, July 05, 2006
I see dead people

Ekki alveg en hef komist að mínum yfirnáttúrulegu hæfileikum. Ég get nebbla flutt Vally's limewire tunes á milli tölva með hugarorkunni einni saman! Alveg satt, var að hjálpa Slátranum að setja upp Itunes-ið sitt í tölvuna sína og svo allt í einu birtist bara öll lögin sem ég hef downloadað af limewire inn á tölvuna hans!ha geggjaður hæfileiki, núna get ég dúndrað ólöglegu lögunum mínum hist og her og búið til öngþveiti í tölvuheiminum.

-Inga systir er supercop með meiru. Hún var í löggubílnum sem valt í útkalli í gær en Inga hetja vankaðist ekki einu sinni, heldur hoppaði útúr bílnum með lögguhúfuna enn á höfðinu og fór í dag að passa uppá að enginn færi að gera Bush eldri skaða.

-Pabbi minn er komin með gráa fiðringinn. Maðurinn er búinn að fjárfesta í mótorhjóli með hliðarvagni fyrir Ittu sína sem er allskostar ekki sátt og hefur hótað að taka pabba aaldreei með aftur til Finlands fyrst að hann ætlar bara að spandera peningum í svona vitleysu. Ég sé samt þau skötuhjú alveg fyrir mér á þjóðvegum landsins, pabbi að kitla pinnann og mamma með vindinn í krullunum í hliðarvagninum.

-Fór á chickflick mynd áðan með áztkonunni minni,"Take the lead", ágætis afþreying og YaYa fyrrverandi A.N.T.M gella var að dansa einsog vindurinn um allt. Takk Rex Partykex fyrir miðana, næst kemur þú með!

Vallý-Pant rúnt með Árna Mallakútasyni!!!


Posted at 12:16 am by valborgin
Comments (4)  

Friday, June 30, 2006
kaltes klares wasser

-Í fyrradag forum við Inga í göngutúr í Elliðarárdalnum og þeir sem mig þekkja, vita að ég fór ekki tuðulaust en maður þarf víst að hlýða eldri systrum sínum og ég tala nú ekki um þegar sú eldri er lögga sem á meis og hún væri alveg vís til þess að meisa á mig pjölluna og ekki viljum við það!Anyways veðrið var yndislegt, dalurinn fallegur og við ákváðum að hoppa á klettasyllu í ánni og sitja þar og ímynda okkur að við værum í Selskógi. Eftir drykklanga stund ákváðum við að fara heim, enda Inga búin að lofa að verðlauna mig með snúðabakstri og er það eitthvað sem við viljum. Ekki vildi betur til en Inga launmorðingi var búin að leysa einn stein með þeim afleiðingum að þegar ég ætlaði að stökkva yfir á árbakkann þá stikkast mér fótur, snýst í loftinu og lendi á bakinu í ekki svo heitri á. Og jesús á himnum hvað ég var blaut, ekki í góðri merkingu. Okey okey Inga leysti ekki steininn en Klárlega var það sagan þegar ég hringdi beinavegin til Finlands í foreldra okkar og tjáði þeim að Inga væri orðin án efa siðspillasta lögregla landsins og ég óttaðist mjög um líf mitt. Itta hló bara, sagði mér að hætta þessari vitleysu og byrjaði að spyrja um líðan Kittyar og Randalínar. Fine örverpið næstum því dáið en okey, kisurnar hafa það vejlig bra.

-Ég fæ aldrei skemmtilegan póst. Yfirleitt er það bankinn að senda mér eitthvað bull sem ég skil ekki, hendi því bara í ruslið og er fyrir vikið stórskuldug slött. En í dag fékk ég skemmtilegt bréf, Christine Jensen er öll ólm i að hitta mig í ágúst. Og nú spyrja sumir hver er Christine Jensen?ég hef ekki mikla hugmynd um það, en hún er skólastjóri NOMA sem er multimedia skóli sem ég sótti um, í vor og viti menn, ég fékk inngöngu! Hurrey, sem þýðir að ég og Fíi(Lindu helsta martröð)ætlum að vera skólafélagar, drykkjufélagar og almennir vitleysingar saman, næstu tvö árin! Til hamingju Danmörk og til hamingju Christine Jensen, þu hefur ekki andskotanum hugmynd um hvað þið hafið verið að kalla yfir ykkur!

Vallý-þokkalega ryðguð í dönskunni en er öll spræk í vallýsku             


Posted at 12:51 am by valborgin
Comments (10)  

Next Page
   

<< May 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed