Friday, June 30, 2006
kaltes klares wasser

-Í fyrradag forum við Inga í göngutúr í Elliðarárdalnum og þeir sem mig þekkja, vita að ég fór ekki tuðulaust en maður þarf víst að hlýða eldri systrum sínum og ég tala nú ekki um þegar sú eldri er lögga sem á meis og hún væri alveg vís til þess að meisa á mig pjölluna og ekki viljum við það!Anyways veðrið var yndislegt, dalurinn fallegur og við ákváðum að hoppa á klettasyllu í ánni og sitja þar og ímynda okkur að við værum í Selskógi. Eftir drykklanga stund ákváðum við að fara heim, enda Inga búin að lofa að verðlauna mig með snúðabakstri og er það eitthvað sem við viljum. Ekki vildi betur til en Inga launmorðingi var búin að leysa einn stein með þeim afleiðingum að þegar ég ætlaði að stökkva yfir á árbakkann þá stikkast mér fótur, snýst í loftinu og lendi á bakinu í ekki svo heitri á. Og jesús á himnum hvað ég var blaut, ekki í góðri merkingu. Okey okey Inga leysti ekki steininn en Klárlega var það sagan þegar ég hringdi beinavegin til Finlands í foreldra okkar og tjáði þeim að Inga væri orðin án efa siðspillasta lögregla landsins og ég óttaðist mjög um líf mitt. Itta hló bara, sagði mér að hætta þessari vitleysu og byrjaði að spyrja um líðan Kittyar og Randalínar. Fine örverpið næstum því dáið en okey, kisurnar hafa það vejlig bra.

-Ég fæ aldrei skemmtilegan póst. Yfirleitt er það bankinn að senda mér eitthvað bull sem ég skil ekki, hendi því bara í ruslið og er fyrir vikið stórskuldug slött. En í dag fékk ég skemmtilegt bréf, Christine Jensen er öll ólm i að hitta mig í ágúst. Og nú spyrja sumir hver er Christine Jensen?ég hef ekki mikla hugmynd um það, en hún er skólastjóri NOMA sem er multimedia skóli sem ég sótti um, í vor og viti menn, ég fékk inngöngu! Hurrey, sem þýðir að ég og Fíi(Lindu helsta martröð)ætlum að vera skólafélagar, drykkjufélagar og almennir vitleysingar saman, næstu tvö árin! Til hamingju Danmörk og til hamingju Christine Jensen, þu hefur ekki andskotanum hugmynd um hvað þið hafið verið að kalla yfir ykkur!

Vallý-þokkalega ryðguð í dönskunni en er öll spræk í vallýsku             


Posted at 12:51 am by valborgin

Þóra Elísabet
July 1, 2006   07:08 PM PDT
 
Geggjað smeggjað!
Til hamingju:)
Signý
June 30, 2006   09:18 PM PDT
 
Ég segi nú bara til hamingju Danmörk!!!
vally
June 30, 2006   04:44 PM PDT
 
SORRY!!!!eitt kríli er nóg! en ég hringi oft og segi mússímússímússímússimúss!!!!
Áztkonan...
June 30, 2006   02:57 PM PDT
 
Getum við rætt það að þú hafir skrifað "LÍTIL KRÍLI!!" Ég er sko bara með eitt í maganum þakka þér kærlega fyrir!!!

en já það er eins gott að Bumburkíluz fái að hitta þig mega mikið um jólin.. ég ætla ekki að standa í því að vera með mynd af þér í vöggunni og segja því sögur frá þér og okkur og leyfa því að heyra í þér röddina þegar ég hringi í þig til að það fái að vita hver þú ert...!!
vally
June 30, 2006   01:57 PM PDT
 
Takk elskurnar mínar!
jay:Það er eitthvað með mig og rauðhærða karlmenn, við skemmtum okkur alltaf best saman
Inga:ég skal stjana við þig þangað til að ég fer
áztkonan mín:Svo þegar ég kem um jólin verðuru með lítil krýli sem ég mun ofdekra!
Magna:Ég fer í kringum 20.ágúst
Magna
June 30, 2006   10:07 AM PDT
 
Til hamingju með þetta elzkan mín...ekkert smá flott hjá þér:#:# Guð hvað það á eftir að vera geggjað gaman hjá þér...lofaðu mér samt að koma heim aftur...ekki setjast að í Baunalandi!! Hvenær ferðu skvízz??
Aftur til hamingju:#
Áztkonan...
June 30, 2006   09:48 AM PDT
 
til hamingju áztin mín..!!! (þetta var sagt frá hjartanu en samt með miklum fýlutón)!!!
Ég er ekki sátt við þetta og finnst þetta ömó tímasetning(fyrir mig sko) (ekki það að önnur hefði verið betri) en núna er ég ein þegar ég er úber ólétt út um allt og kemst ekki inn um dyr og get ekki reimað skóna mína eða setið inní bíl og ekki snúið mér án þinnar hjálpar í rúminu...
Í ÞOKKABÓT get ég ekki komið í heimsókn til þín fyrr en næsta haust á næsta ári því að ég mun koma til með að vera annaðhvort á steypirnum eða með lítið barn (eða þá að ég finn mér upp afsökun því ég þori ekki að hitta Fía)!!

já ég er sjálfselzk en mér er bara alveg fokk sama...!
en samt alveg tussu mikið til hammó með þetta og þetta á eftir að vera klikkað mergjað hjá þér...! :,*
Ingaló
June 30, 2006   07:46 AM PDT
 
Valborg...þú veist þú getur ekki farið, þú fæddist í þennan heim til að létta mér lífið og vera innan seilingar if I may need ya! Sorry puzz, ég man ekki eftir að hafa aflétt þrælahaldinu af þér..muhaha;)
Bra spaug, en og aftur til hamingju, er ótrúlega ánægð með þig, stelpa!
rex
June 30, 2006   07:09 AM PDT
 
Til hamingju elskan!! :)
Jay
June 30, 2006   03:21 AM PDT
 
Þú getur náttúrulega EKKI verið ein með stærri tvíburabróður mínum í Danmörku... ætli ég verði ekki að koma með :-) En svona í alvöru : til hamingju Puzz!!!
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry
   

<< June 2006 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed