Ekki alveg en hef komist að mínum yfirnáttúrulegu hæfileikum. Ég get nebbla flutt Vally's limewire tunes á milli tölva með hugarorkunni einni saman! Alveg satt, var að hjálpa Slátranum að setja upp Itunes-ið sitt í tölvuna sína og svo allt í einu birtist bara öll lögin sem ég hef downloadað af limewire inn á tölvuna hans!ha geggjaður hæfileiki, núna get ég dúndrað ólöglegu lögunum mínum hist og her og búið til öngþveiti í tölvuheiminum.
-Inga systir er supercop með meiru. Hún var í löggubílnum sem valt í útkalli í gær en Inga hetja vankaðist ekki einu sinni, heldur hoppaði útúr bílnum með lögguhúfuna enn á höfðinu og fór í dag að passa uppá að enginn færi að gera Bush eldri skaða.
-Pabbi minn er komin með gráa fiðringinn. Maðurinn er búinn að fjárfesta í mótorhjóli með hliðarvagni fyrir Ittu sína sem er allskostar ekki sátt og hefur hótað að taka pabba aaldreei með aftur til Finlands fyrst að hann ætlar bara að spandera peningum í svona vitleysu. Ég sé samt þau skötuhjú alveg fyrir mér á þjóðvegum landsins, pabbi að kitla pinnann og mamma með vindinn í krullunum í hliðarvagninum.
-Fór á chickflick mynd áðan með áztkonunni minni,"Take the lead", ágætis afþreying og YaYa fyrrverandi A.N.T.M gella var að dansa einsog vindurinn um allt. Takk Rex Partykex fyrir miðana, næst kemur þú með!
Vallý-Pant rúnt með Árna Mallakútasyni!!!