Vikan hefur hreinlega ekki verið skemmtileg því að mér finnst ekki gaman að vera inni þegar það er sól úti, loksins þegar sólarskrattinn ákveður a' láta sjá sig, ég er ekki búin að safna neinni nýrri freknu í sumar! En þegar mér leiðist þá er spanderað og þar sem ég er löt þá var ekki farið lengra en hring í Skífunni og fjárfest í skífum. Það sem ég hef keypt þessa viku er nýji Johnny Cash diskurinn sem er klárlega þunglyndisaukandi því að hann er svo sad, samt magnaður, fallegur og snilldin útí gegn en sorgmæddur fyrst og fremst. Gamli coco rosie diskurinn því að ég týndi honum og það má nú ekki, Bianca my girlfriend væri nú ekki sátt ef hún frétti þetta. Nyji PowerSolo diskurinn sem er snilld, party party smartís party og svo gamli Powersolo líka Its a raceday...and your pussy is gut...nafnið heillaði mig ákaflega.. svalur..Powersolo er bara svöl hljómsveit og já svo keypti ég líka nýja Hot chip diskinn og hann er svalur lika. þannig að ég hef keypt mér disk á dag og er hvergi nærri hætt, á mánudaginn er það nýji PeepingTom diskurinn.
Jakob gaf mér kassa af Nastro í afmælisgjöf, einn bjór fyrir hvert ár sem ég hef lifað. Við fengum okkur einn Nastro eftir vinnu í gær og ef ég má gefa ykkur tips, þá skulu þig aldrei fá ykkur Nastro og svo einhverja aðra tegund á eftir, seinni tegundin á sér ekki viðrreisnar von eftir Nastroin. ANYWAYS við sátum heima hjá honum, ég fékk að vera dj og eftir nokkra bjóra var switch sett á rípley og gamlir danstaktar rifjaðir upp, djöfull erum við svöl. Svo var haldið í byen, á DIllon, tekin skot og drukkin bjór áður en haldið var á Barinn þar sem ég hitti stórvin minn Hjalta og þá var nú aldeilis dansað þangað til að Hjalti vildi finna dverg í klám og þar sem ég var alls ekki tilkippileg hvarf hann á braut og ég fór heim til þess eins að mæta falleg í vinnuna í dag.
Núna er ég að fara að hitta Láru og er öll spennt, við erum nebbla bullstappar dauðans saman