Monday, June 26, 2006
Jabbsí

Nýjasti vinur minn eftir þessa helgi er engin annar en Jim Beam, beinaveginn frá Bandaríkjunum, seiðandi góður með klökum, hmmm..tvöfaldur og ekkert rugl!

Næstu tvær vikurnar erum við að passa nýjustu prinsessur Ittu og Árna, þær Kitty og Randalín. Mér finnst einsog ég sé búin að missa plássið mitt sem dekurdúkkan í fjölskyldunni. Greyjið kisurnar samt, uppdópaðar eftir flugferðina og rangluðu um íbúðina einsog tvær drukknar puzzys

Nú bíðég bara öll spennt eftir að júlí komi því að þá:

-Mun Kolla,Anah,Nadir og Amaan koma

-Bóel verður 22 ára gömul, bless her

-Plís Rex að við förum í útilegu

-Ég fer austur og verð þar í viku,ljúft ljúft

-Belle & Sebastian tónleikar í fjörðinum fagra

-Jakob mun hafa meiri tíma fyrir puzzina sína

-Bumban á Lindu mun stækka og

-Svo eflaust fullt af ævintýrum sem mun bíða mín

Áfram Júlí!


Posted at 08:18 pm by valborgin
Comments (9)  

Wednesday, June 21, 2006
Jájá

Þá er komið að því, fyrsti erfingji Thunderpuzzy´s veldisins er fæddur!!!

Til hamingju Erla mín og Jónas með litlu prinsessuna ykkar!!!


Posted at 12:09 am by valborgin
Comment (1)  

Sunday, June 18, 2006
hæ hó jibbí jeh

Afmælisdagurinn í löngu máli mun koma fram í titlum,góðar stundir

Vakning dagsins:Klukkan 09:30 vakti Inga mig og dró mig niður á Austurvöll til þess að horfa á slátrarann í hátíðarheiðursvörð lögreglumanna. Ég skemmti mér konunglega,sá forsetann,heyrði þjóðsönginn fallega sungin og heyrði einhvern öskra á Geir H.Haarde að hann væri morðingi. Svo var haldið á Oliver i feitan afmælisbrunch og Bóel kom.

Fyrsti bjórinn:á Thorvaldsen klukkan 14:00 í boði slátrarans, svo var haldið a Vegamót til þess að þamba meiri bjór með Rex,Evu,Önnu og Kalla.

Setning dagsins:"Hey common,I know my Nylon skillurru"Klárlega ekki Eva en  hratt hljópstu þegar þær byrjuðu að syngja LoSiNg A fRiEnD, alveg einsog vindurinn á pinnahælum 

Móment dagsins:Kaffibrennzlan klukkan 18:20, Jóhannes stórvinur minn og pabbi Bóelar og vinur hans mættu galvaskir,buðu i Nastro og sungu afmælissönginn  svo fallega að Garðar Cortes hefði orðið grænn af öfund, Ekki skemmdi fyrir bakradda söngur Rex,Önnu, Evu og Kalla og því síður skemmdi fyrir þegar troðfullur staðurinn klappaði hátt og lengi

Sögumaður dagsins:Klárlega Rex sem er heill hafsjór af skemmtilegum sögum, engin nema kexið getur látið hafragrautssögu hljóma skemmtilega

Dans dagsins:Nylon að gera klám uppá sviði fyrir aðdáendur sína sem eru lítil börn.

Dúllur dagsins:Nágrannabörnin mín sem gerðu næstum því á sig úr spenningi því að þau héldu að Ragga væri Silvía Nótt,bara ekki í búning

Útlendingar dagsins:Vinir Sunnu frá USA sem voru að missa sig úr kæti yfir íslensku djammi, best í heimi

Perri og kjáni dagsins:Ég að vera að eggja manneskjur í sms kynmök og vera svo inneignarlaus sjálf

SkammistYkkar dagsins:Fólkið sem ákvað að hafa mök klukkan hálf tíu í morgun í herberginu við hliðina á okkur Signy á Holtsgötunni

EkkiMálið dagsins:Þakglugginn í herberginu á Holtsgötunni og sólin sem ákvað allt í einu að skína svo skemmtilega á smettið mitt.

Trunta dagsins:Jakob,takk fyrir að eyða deginum með mér!eða ekki..elska þig samt

Fólk dagsins:Foreldrar mínir fyrir að vera slingir reikningsmenn og geta mig níu mánuðum fyrir 17.júní en einsog móðir mín sagði á mjög pervískan hátt í gær"mar kann þetta hehe"

Þakkir dagsins:Allir þeir sem óskuðu mér til hamingju með daginn, hvort sem það var í formi kossa,myspaceCommenta, smsa eða msn, takk fyrir mig! Svo líka bjórdrykkjufélagar mínir sem voru svo til í hvern bjórinn á fætur öðrum


Posted at 02:42 pm by valborgin
Comments (6)  

Saturday, June 17, 2006
til hamingu ég

fokk Jón Sigurðsson, fokk lýðveldi, fokk Ísland,

þessi dagur snýst bara og eingöngu um mig!!


Posted at 10:10 pm by valborgin
Comment (1)  

Thursday, June 15, 2006
eruði ekki að fokking djóka

Á laugardag (17.júní - Lýðveldisdag): Suðlæg átt, 5-8 m/s og dálítil súld eða rigning af og til sunnan- og vestanlands, en yfirleitt þurrt norðaustan- og austanlands og sólarglennur. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast austanlands.

Posted at 02:46 pm by valborgin
Comments (6)  

Vildi bara láta ykkur vita

að hátíðarbúningur íslenskra lögreglumanna er alveg að gera það fyrir mig!!

Vallý:perri þar sem systir hennar er lögga


Posted at 10:56 am by valborgin
Comments (2)  

Wednesday, June 14, 2006
humm

Ég ætla að kvarta. Celebretíar þessa heims eru svooo ekki að standa sig!! Það eru allir bara að gifta sig og eignast fullt,fullt af börnum, eintóm hamingja! Hvar eru eiturlyfjasjúklingarnir, alkahólistarnir,gangstarernir og tukthúslimirnir?!?! Það er ekki nóg að þetta fólk er fallegt og ríkt þá þarf það að vera blússandi hamingjusamt í þokkabót?Djöfull,ég vil fá almennilegt skúbb og ekki seinna en núna!

Posted at 08:09 pm by valborgin
Comments (5)  

Monday, June 12, 2006
Fór austur,ekki í klaustur

-Eftir vinnu á föstudaginn var brunað á annað hundraðinu í héraðið fagra.

-Eyddi laugardeginum í mömmuknús og að þykjast vera að hjálpa pabba að setja upp einhverja garðrólu.

-Keyrði foreldrana niður á Fáskrúðsfjörð í dúndrandi partý og matarboð, ákvað að bruna svo á Norðfjörð í Mögnuknús og spjall sem tók svona þrjá tíma. Brunaði aftur á Fáskrúðsfjörð(takk Guð fyrir göngin)til að ná í fulla foreldra.

-Elsa og Eyrún náðu svo í mig og aftur var brunað yfir fagradalinn,drukkin fullt af bjór á mettima og skellt sér á dansiball á Eskifirði.

-Ég var á barnum allann tímann, tók fullt af skotum, drakk lítra af bjór og uppskar dúndur hiksta.

-Ég læri seint,jafnvel aldrei, hefði átt að vita eftir "ÞúSkaltBaraÞykjastVeraMeðAstma lögguráðið hennar Elsu, að hún lumar bara á stórhættulegum ráðum, allavegana var hennar ráð við hiksta að dúndra kúfullri matskeið af sykri uppí mig, ég losnaði við hikstann en uppskar að kúgast í klukkutíma á eftir.

-Hjalti my giantfriend taldi alla á það að ég væri eiginlega rauðhærð, var ekki sátt og eftir mikið þras og þrögll og þjark var ákveðið að ég væri Vallý Goldenlocks, just like barbie,eða vinkona hennar

-Var smá þunn á sunnudag,þannig að garðrólan góða kom að góðum notum þar sem eg lá þar allan daginn undir teppi og með sólina í andlitið

-En mikið var nú gott að komast austur..jesús..hlaða batteríin fyrir afmælið á laugardaginn!  


Posted at 07:58 pm by valborgin
Comments (4)  

Thursday, June 08, 2006
"you're not ugly,you can kiss me if you like"

Þeir sem ætla að kaupa sér miða á Belle&Sebastian ættu að gera það ekki seinna en nuna!Hvort sem þið ætlið á skíta NASA eða fallega Borgarfjörðinn, núna og ég er að tala um NÚNA, miðarnir eru að fljúga út, á báðum stöðum

Vallý:Sjálfskipaður talsmaður hljómsveitarinnar


Posted at 02:27 pm by valborgin
Comment (1)  

Wednesday, June 07, 2006
úff

Áðan í vinnunni varð ég móðguð fyrir hönd allra Borgfirðinga sem ég þekki, alla 150 talsins, þegar hringt var í Skífuna og spurt um Belle&Sebastian tónleikana, svo var spurt"ee....hérna hvar er samt Borgarfjörður eystri?", ég kreppti hnefana í smástund, dró andann djúpt og sagði"veistu hvar Egilsstaðir eru?"Svarið var til þess að ég varð mjög móðguð fyrir hönd allra á Egilsstöðum og mín sjálfs"jú er það ekki nálægt Akureyri?"Ef ég væri ekki svona vel uppalin einsog allir Austfirðingar,þá hefði ég skellt á.

Posted at 07:57 pm by valborgin
Comments (2)  

Previous Page Next Page
   

<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed