Entry: Sumarfrí! Monday, July 31, 2006



Það er fullorðins og móðins að taka sér sumarfrí og hef ég verið í þeim pakka síðustu vikuna. Stóð ég mig með mikilli prýði sem móðirsystir og enn betra sem alkolisti

LUNGA:

Það vildi svo skemmtilega til að Lunga hátíðin hennar Bjartar(sys) var einmitt fyrri sumarfríshelgina og varð ég þess heiður aðnjótandi að sitja í bíl með óléttri konu alla leiðina austur. Sú ólétta stóð sig mjög vel sem dj og skúbba heilan helling og hún stóð sig líka glimrandi vel í að hækka hitann í milljón eða kæla niður nibblurnar það mikið að hættulegt gat talist en við komumst heilu á höldnu austur og mikið var nú gott að fá mömmuknús sem hafði þó meiri áhyggjur af óléttu ástkonunni minni heldur en mér með kalnibblurnar.

Lunga var hin mesta skemmtun og fannst mér geggjað að hitta Elsuna mína sem er hressleikinn uppmálaður. Við Reynir lögðum á slöttráðin sem rættist úr, ég óð í pollinn sem er í miðju bænum til þess að sanna fyrir Reykvíkingi að þetta væri ekki saltvatn, dansaði við Todmobile, fékk Maggýjar knús, pimpaði Soffíu Tinnu út en hún hafði nú huxað sér annað og svo var tjaldað á fótboltavellinum.

Borgarfjörður Eystri:

Jesús pétur á himnum, hvað þetta var geggjuð helgi, ef stiklað er á mjög stóru þá gerðist til dæmis þetta:

-Elsa pikkaði Brasilíska stelpu á netinu og sagði henni að koma á Boggann, sem hún gerði(okey, sagan er ekki alveg svona einföld en mér finnst mín útgáfa miklu skemmtilegri heldur en sú sanna)

-Gítarpartý í Réttarholti með bjórdrykkju og wisky, Johnny Cash sungin fyrir ameríkanana sem gistu þar.

-Dansað við unaðsöng Hlyns Ben í Fjarðarborg ásamt meðlimum Belle&Sebastian og ef ég,Elsa og Bóel hefðum ekki verið á dansgólfinu hefði Emiliana Torrini verið drottning gólfsins.

-Álfaborgarferð

-Þynnka á laugardaginn, bjór klukkan 14:00, trampolin hopp og lög sungin með Hlynzanum. Fótboltaleikur þar sem Krissa var tækluð duglega,skal þó tekið fram að hún var ekki að spila,sat bara á hliðarlínunni.

-Grillveisla þar sem var ælt og svo borðað meira.

-Klikkaðir tónleikar, dansað einsog engin væri morgundagurinn og sungið með.

-Brunnaparty að hætti Elsu.útskýring:Gamall vatnstankur með geðveiku sándi í, hægt að radda sjálfan sig. Heiðursgestur var Emiliana sjálf sem táraðist af hamingju. Eftir að ættjarðarlögin voru kryfjuð, var endað partýið með eitt stykki hokí pokí.

-Fjarðaborg með hinum fína dj Ívar. Plássið var lítið þannig að ég og raggi brugðum á það ráð að dansa uppá sviði, sem var gaman, enda erum við athyglissjúk. 

-Vaknaði um nóttina þar sem Bryndís húsfrú Réttarholts var að reka Elsu og alla skotana sem hún hafði dregið niður í brunninn, upp, þá var bara trallað á tjaldstæðinu og Örn Ingi vaknaði við hliðina á tengdapabba sínum.

SNilldar helgi, takk allir saman,

Vallý-blue moon, I saw you standing alone!!

   8 comments

Vally
August 8, 2006   10:20 PM PDT
 
díses...youu and your sick world!!!
ingaló
August 7, 2006   02:35 AM PDT
 
ég gleymdi engu....bakpokinn var allan tíman í bílnum eins og vissi alltaf! Og þú stalst myndavélinni af mér!
VALLY
August 3, 2006   03:00 PM PDT
 
Er það Inga?? ER ÞAÐ??? ég gleymi allavegana ekki hlutum, einsog töskum, myndavélum og símum útum allar trissur!!!
ingaló
August 3, 2006   05:24 AM PDT
 
right valborg....ég er búin að klaga í mömmu svo þú átt ekki von á góðu næst þegar þú ferð í sveitina! Mamma veit sko alveg að ég er íslenzkur templari fram í fingurgóma... og það er nú ekki hægt að segja um suma ;)
Þóra Elísabet
August 1, 2006   09:28 PM PDT
 
Ohhh... hefði átt að koma á Boggann!
vally
August 1, 2006   04:21 PM PDT
 
Inga:þú heimtair alltaf meira wisky og ég þorði ekki nema að hlýða!
Áztkona:nei ég fór o vatnið þarna þar sem brúin er, hjá herðubreið, ekki þarna þar sem listaverkið er, nei nei ég er nú meira tough cookie en það! og mamma þín mega perri, heilsa barnabarninu jeh right!!!!
ingaló
August 1, 2006   11:46 AM PDT
 
þetta var bara snilldar kvöldið...en þú lést mig drekka alltof mikið WISKY!! Meiri skepan að fara svona með aldraða systur þína!!
Áztkonan...
August 1, 2006   11:07 AM PDT
 
Takk fyrir road trippið... Hef tekið að mér bílferðir þar sem að Dj. Lindz vaknar og slúddinn flæðir um ALLT - enda engin betri í þeim málum en moi! við getum farið í aðra ´ferð núna því að staðan í dag í hormónageðveika líkama mínum er að mér er ALLTAF OF HEITT!! ríf mig úr öllum fötum hvar og hvenær sem er og vill helst hafa alla glugga opna og vera klædd klakafötum.. gott að hafa ENGA stjórn á líkama mínum né skapi mínu ef út í það er farið...
Gott að einhver hafði áhyggjur af óléttu áztkonunni því að mamma mín og pabbi hrutu eins og grjót þegar ég kom heim.. og vaknaði ég síðan bara við það kl.8 þegar einhver (mamma mín) var að læða hendinni undir sængina mína til að heilsa barnabarninu... perralegt? já það þykir mér nú!!

óóóóóóó!! út í litlu tjörnina.. fyrir framan skólann... ég hélt að þú hefðir farið út í sjóinn - þið bentuð alltaf þangað!

Ég vill fá elsu-brasilísku sönguna í vinnustaðameil á eftir.. er mega forvitin...

1000 rokkarastig fyrir álfaborgarferðina þína.. :) ég er svoo stolt af þér!

hahhhahaha.. pissaði smá í mig úr hlátri yfir tækluninni á Krissu... :)

og jú athyglissjúk ertu kona góð.. en samt elzka ég þig!

ekki myndi ég vilja vakna við hliðina á tengdapabba mínum... það yrði of vandræðalegt!

til hamingju með nánast lengsta komment sem að ég hef skrifað...!

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments